Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Bloggar

Frábært!

Bretar hafa semsagt samþykkt að við megum fara með þetta fyrir dómstóla en bara með því skilyrði að það skipti ekki máli ef við vinnum við töpum samt.

Þarf eitthvað að ræða svona  skilmála? Er svarið ekki sjálfkrafa Nei takk?

Það er alveg á hreinu að ef þeir sem segja að dómstólaleiðin geti ekki skilað árangri hafa ekki rétt fyrir sér því ef svo væri þá væru Bretar og Hollendingar ekki svona harðir á þessu ákvæði. 

Hver sá sem samþykkir þetta er sjálfkrafa landráðamaður þar sem sá hinn sami hefur afsalað okkur fullveldi og sjálfstæði. 


mbl.is Icesave-fyrirvörum breytt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ráðherraeftirlit Ríkissins

Er ekki líka kominn tími á að setja upp Ráðherraeftirlit ríkissins til að tryggja að allar ákvarðanir sem ráðherra taka séu í samræmi við stefnu flokksins?
mbl.is Fjölmiðlastofa hafi eftirlit
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lausn á fangelsisvanda

Þarna er kjörið tækifæri til að leysa vanda Fangelsismálstofnunar, þarna er nefnilega til sölu 297 m² svefnskáli með 20 herberjum sem hvert um sig er 8,7 m² og með sér salerni, þessa byggingu má setja t.d. innan girðingar í litlahrauni án mikils kostnaðar.

 


mbl.is Óskar eftir tilboðum í vinnubúðir á Kárahnjúkum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rólegt

Það er ekki nema eðlilegt að þingheimur taki sér frí enda lítið framundan, búið að samþykkja allt sem skiptir máli eins og umsókn í ESB og IceSave hlekki.

Núna eru bara eftir smámál sem litlu skiptir eins og að bjarga heimillum landsins og tryggja atvinnu, það má bíða, þingmenn eru ekkert að missa sín heimilli í gjaldþrot svo það liggur ekkert á... 


mbl.is Þingfundi frestað til 1. október
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bara ein lausn

Það er bara ein lausn á þessu, sú sama og rædd hefur verið bæði í Fraklandi og U.S.A. það er að setja 90-95% skatt á allar bónusgreiðslur.

 

Það er nefnilega ekki hægt að stöðva þetta tryllta lið með neinum venjulegum leiðum því það telur sig eiga rétt á hinu og þessu. 


mbl.is Bónusgreiðslur til Straumsmanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Engan skaða?

Mig langar til að koma með smá athugasemd við yfirlýsinguna sem Sjóvá kom með en yfirlýsingin er svona

" vátryggingartakar og tjónþolar hafi ekki beðið neinn fjárhagslegan skaða í tengslum við fjárfestingar fyrirtækisins undir stjórn fyrri eigenda. Komið hafi verið í veg fyrir það."

Ég er nefnilega einn að vátryggingatökum þessa félags og það er ekki rétt að ég hafi ekki beðið neinn fárhagslegan skaða, ég er nefnilega einn af þeim sem gegnum aukna skattheimtu og minni þjónustu kem til með að borga m.a. þá háu upphæð  (held það hafi verð 12 milljarðar) sem ríkisjóður lagði í félagið til að halda því gangandi.

Svo er náttúrulega allur hinn skaðinn sem maður ber eftir þessa aumingja. 


mbl.is Karl og Guðmundur yfirheyrðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flokkarottur

Núna eru flokkarnir búnir að senda af stað rotturnar sýnar til að gera lítið úr mótmælendum, í þetta skiptið eru það samfylkingarmenn sem sent hafa út sínar rottur til að rægja niður mótmælendur, en þetta er sami leikur og sjálfstæðisflokkurinn lék í vetur.

icesave mótmæli

Þetta er kanski ekkert skrítið því þetta fólk virðist ekki vera fært um að móta sýnar eigin skoðanir heldur fylgir það bara línu flokks síns blindandi og heldur þess vegna að allir sem eru ekki á sömu skoðun og flokkurinn þeirra hljóti líka að vera flokksrottur en bara úr flokki andstæðinganna.

Við verðum að hætta þessu ef eitthvað einhverntímann á að batna á þessu landi því það er þessi hegðun borgaranna sem gerir stjórnmálamönnum kleift að koma sínu fram hversu slæmt sem það er því þeir vita að rotturnar þeirra fylgja þeim í blindni.

Ég mætti reglulega á mótmælinn síðastliðin vetur og ég mæti líka núna ég tilheyri nefnilega þeim hópi manna sem oftast er kallaður Íslendingar og stend þess vegna með öllum öðrum í þeim hópi.


mbl.is 3000 á samstöðufundi InDefence
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Áhlaupið hafið

Það virðist eins og stjórnendur Kaupþings séu að fá að upplifa verstu martröð allra bankamanna bánkaáhlup (Run on the bank). Þeir þurfa ekki að bíða fram yfir helgi þar sem fólk virðist vera að nota helgina til að færa peningana burtu með heimabankanum.

 

Minni líka á orð Steingríms þar sem hann er verulega óskýr varðandi ríkisábyrgð á bankainnistæðum en þær eru kannski ekki eins tryggar og fólk heldur, hann getur nefnilega bara boðað annað í fyrramálið og þá er þetta allt búið.

 

Ætlar þú að taka sénsinn?

Ekki ég


mbl.is Netverjar æfir yfir lögbanni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Myndræn skýring

Icesave samningur við hollendinga

Svona til glögvunar þá er ég búinn að setja þetta upp myndrænt.

Þetta er Hollenski samningurinn eins og hann leggur sig.

Orð eru því stærri sem þau koma oftar fyrir í samningnum. 

Miðað við allt það bull sem hefur verið í gangi þar sem menn tala hver á móti öðrum þá er þetta ekkert verri aðferð við að meta samninginn. 

Umhugsunarvert hvað orðið Guarantee er stórt.

 


mbl.is Skýringar við Icesave-samning birtar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Sigurður Ingi Kjartansson
Sigurður Ingi Kjartansson
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband