13.9.2011 | 10:18
Breyttir tímar
Í dag kvarta menn yfir því að forsetinn sé að skipta sér af málum, áður fögnuð þeir frumkvæði hans.
Hér er lítið brot úr forystugrein Alþýðublaðsins 13. Febrúar 1997 (ritstjóri enginn annar en Össur Skarphéðinsson) Hér er verið að tala um það þegar hann hvatti Norðmenn og Íslendinga til að semja í smugudeilunni.
"Herra Ólafur Ragnar á hrós skilið fyrir það frumkvæði sem hann hefur nú tekið. Það kemur hinsvegar engum á óvart sem þekkir til glöggskyggni og reynslu forsetans þegar alþjóðamál eru annars vegar. Frumkvæði hans hefur leitt til opnunar, sem bæði Norðmenn og Íslendingar eiga að nýta sér til að ljúka deilunum með hætti, sem báðum þjóðum er til sóma. Vinaþjóðir, sem urðu til á svipuðum tíma, sem kalla til ríkrar frændsemi hvor við aðra, sem fylgja hvor annarri að málum í flestum málum á erlendum vettvangi, eiga nú að slíðra sverðin."
Hægt er að skoð þessa forystugrein í heild hér
http://timarit.is/view_page_init.jsp?issId=246832&pageId=3348794&lang=is
|
Stórskotaliðsárásir forseta |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.5.2011 | 18:18
Rangur póll í hæðina
Þarna er verið að leysa vitlaust vandamá, það er nefnilega þannig að fólk hendir alls ekki miklu af plastpokum heldur notar fólk þá undir rusl sem það hendir frá heimilinu, ég hef reyndar oft furðað mig á því hvernig standi á því að ég hendi nær jafn miklu og ég kaupi inn, ég hef meiri að segja lent í því að þurfa að kaupa auka poka til að nota undir allt ruslið á heimilinu.
Semsagt ef mér verður bannað að bera vörurnar heim úr búðinni í burðartpokum þá verð ég að kaupa næstum sama magn af pokum undir allt ruslið sem safnast fyrir á heimilinu.
Væri ekki nær að reyna fyrst að takmarka þær umbuðir sem notaðar eru undir matvæli áður en ráðist er á burðarpokana?
Nei annars það er of flókið, bönnum heldur burðarpokanna svo það líti út fyrir að við séum að gera eithvað.
|
ESB íhugar plastpokabann |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
17.4.2011 | 22:27
Spyr sá sem ekki veit.
Ég hef verið að velta fyrir mér hvernig er kvótamálum eð fiskveiðistjórn háttað í Þýskalandi?
Er óveiddur fiskur þar í einkaeigu?
Svona þar sem Samherja hefur gengið ágætlega að reka útgerð þar væri þá möguleiki að hafa svipað kerfi hér?
Spyr sá sem ekki veit.
|
ESB-þorski landað hér |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
7.3.2011 | 19:11
Laun bankamanna
Menn bera því gjarnan við þegar kvartað er yfir háum launum stjórnenda bankanna að það þurfi að borga þeim há laun til að fá hæfa menn í starfið, við sáum hvernig það endaði síðast.
Ég held að það væri reynandi að ráða bankastjóra sem væru tilbúnir að vinna þetta starf á eðlilegri launum, ég tel að það auki verulega líkurnar á að við fáum stjórnendur sem ekki stjórnast af græðgi en slíkir menn gætu verið verðmætir fyrir bæði bankana og viðskiptavinina.
Að auki set ég stórt spurningamerki við þá kenningu að íslenskir bankamenn gætu farið í stórum stíl að vinna hjá erlendum bankastofnunum, sé ekki fyrir mér að það sé mikill markaður fyrir "tæra snilld" íslenskra bankamanna í útlöndum.
|
Ótrúlegar fréttir af launum |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
23.2.2011 | 21:56
Ömurlegasti málflutningur sem ég heyri
Steingrímur segist vera efinns um að hann væri hlyntur því að þetta færi í þjóðarathvæði ef hann væri í stjórnarandstöðu, ég er aftur á móti viss um að hann væri hlyntur þjóðarathvæði undir slíkum aðstæðum því til sönnunar vitna ég í hans eiginn orð
"Treystum við ekki þjóðinni? Ekki getur það verið vandinn að nokkrum manni í þessum sal, þingræðissinna, detti í hug að þjóðin sé ekki fullfær um að meta þetta mál sjálf og kjósa um það samhliða því að hún kýs sér þingmenn. Stundum heyrist að vísu einstaka hjáróma rödd um að sum mál séu svo flókin að þau henti ekki í þjóðaratkvæði. Það er einhver allra ömurlegasti málflutningur sem ég heyri."
Þetta sagði þessi sami Steingrímur þegar hann var í stjórnaradstöðu 2003
|
Icesave-málið ekki það stórt |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
27.1.2011 | 21:06
Góð hugmynd
Þetta er mjög góð hugmynd og og með þessu fæst hámarksnýting á skattfé.
Þess má geta að ég stakk uppá þessu hér á þessu bloggi 2009.
|
Vinnubúðir verði fangelsi |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
5.1.2011 | 16:51
Myndbirting
Hvenær er myndbirting réttlætanleg og hvenær ekki? Kona rænir Stundents- og skírnargjöf af manni í Kringlunni, það næst á mynd en það má ekki birta myndirnar, persónuvernd segir Geir Jón og brosir.
Misheppnaðir aumingjar gera frekar kjánalega tilraun til að ræna banka og nokkrum mínútum síðar eru myndir af þeim birtar í öllum fjölmiðlum, hvar er núna persónuverndin?
Getur verið að það sé réttlætanlegra að birta myndir af þeim sem ráðast á kerfið en af þeim sem ráðast á einstaklinga?
Eru bankar rétthærri en einstaklingar?
Það er eitthvað mikið rangt við þetta!
|
Leita bankaræningja á Facebook |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
15.10.2010 | 12:46
Gefum þeim vinnufrið
Það er nauðsyn á erfiðum tímum eins og núna að passa að menn séu ekki að gagnrýna Ríkistjórnina eða aðra ráðamenn, því er fullkomlega eðlilegt að beita lögreglunni á þá sem það gera til að tryggja vinnufrið fyrir Jóhönnu og co.
Við megum ekki gleyma því að þau eru að vinna alveg gríðarlega erfitt starf og eru því yfir alla gagnrýni hafin, enn eiga þau nokkra vini sem ekki eru kominn í öruggt starf hjá ríkinu og svo þarf að passa að bankarnir tapi ekki aftur þeim peningum sem þeir hafa stolið af almenningi því þá gætu þeir þurft að rukka vini sína um þá peninga sem þeir lánuðu þeim.
|
Yfirheyrður vegna Facebookfærslu |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
22.9.2010 | 12:37
44,5 stundir
|
Orðið „Icesave” skrifað 76.427 sinnum í fyrra |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
17.9.2010 | 08:45
Af fjármálavitleysingum.
Þegar ég tók mitt lán til bílakaupa* 2007 leit bankinn svo á (kannski með réttu) að ég væri vitleysingur í fjármálum sem hefði freka lítinn skilning á lánamálum, þess vegna lét bankinn mig skrifa undir svokallaða greiðsluáætlun til að ég gæti sannað að ég hefði skilning á því hversu mikið ég þyrfti að borga um hver mánaðamót.
Ég sé mest eftir því að hafa ekki látið bankann líka skrifa undir þessa áætlun til þess að hann gæti sýnt fram á að þetta væri sú uppæð sem ég væri tilbúinn að borga um hver mánaðamót.
*Svona bara svo það komi fram þá var ekki um að ræða 7 milljón króna Range Rover á 100% lánum heldur var einungis tekinn að láni 1 milljón til að kaupa 2,5 milljón króna öruggan, skynsaman og góðan bíl til að koma fjölskyldumeðlimum milli staða.
|
„Svona er bara lífsins gangur“ |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Eldri færslur
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (27.5.): 0
- Sl. sólarhring: 0
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 14266
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar




arikuld
baldvinj
gauisig
fosterinn
jaj
leifur
savar
valgeirskagfjord
thorsaari
tbs
spurs
launafolk
siggi-hrellir
thordisb
jonthorolafsson
gattin
saemi7
ak72
andreshelgi
lillo