12.1.2009 | 21:44
Trúboð
Eru trúleysingjar fanir að stunda "trúboð"
![]() |
Guðleysingjar auglýsa á Ítalíu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Eldri færslur
- Mars 2017
- Nóvember 2014
- September 2013
- Maí 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- September 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Janúar 2010
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (2.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Held að svona borðar hafi verið settir á strætisvagna í Bandaríkjunum ekki fyrir löngu. Eftir það hefur þetta verið að gerast víða í Evrópu.
Á mörgum stöðum í heiminum er mjög erfitt fyrir fólk að játa það að vera trúleysingjar. Getur slíkt leitt til sundrungar í fjölskyldum og því oft líkt við að koma út úr skápnum!?!
Þröstur Hrafnkelsson (IP-tala skráð) 12.1.2009 kl. 22:24
Taktu eftir því að hvergi í þessum auglýsingum stendur ,,Ef þú gerist ekki trúleysingi, þá mun (eitthvað slæmt) henda þig".
Ég held að þau áhrif sem þessar auglýsingar munu hafa verði að fólk verður opnara fyrir þeirri afstöðu að vera trúleysingi, tilbúnara til að viðurkenna trúleysi sitt, og kannski mun fólk hætta að kalla trúleysingja siðleysingja.
LegoPanda, 12.1.2009 kl. 22:37
Ég er reyndar ekkert viss um að allir trúleysingjar séu hrifnir af þessu framtaki þar sem þeir kvarta sumir yfir því að fólk sé að troða trú sinni uppá aðra.
Sigurður Ingi Kjartansson, 12.1.2009 kl. 22:54
Trúleysi er ekki trú frekar en að safna ekki frímerkjum er áhugamál
Þór (IP-tala skráð) 12.1.2009 kl. 22:58
Samfélagið er gegnumsýrt af kristnum tilvísunum hvert sem maður fer. Þegar trúleysingjar hinsvegar leyfa sér að opna munninn um afstöðu sína til lífsins þá er alltaf einhver jólasveinn tilbúinn að garga að menn séu að stunda "trúboð". Það er fullt tilefni fyrir guðleysingja á stöðum eins og Ítalíu og Bandaríkjunum að vekja athygli á tilvist sinni og það verður vonandi til þess að fleiri guðleysingjar þori að tala opinskátt um afstöðu sína í staðinn fyrir að vera bara þjakaðir af sektarkennd.
Bjarki (IP-tala skráð) 12.1.2009 kl. 23:06
Fyrir það fyrsta þá er trúleysi ekki trú vegna þess að það er ekkert til að tilbiðja. Í mínum huga er trúleysi skoðun sem á ekkert skylt við dogma kirkjunnar eða hvaða trúar sem er.
Ég bíð og vonast eftir slíkum auglýsingum á íslenskum strætisvögnum, það er ekki vanþörf á því. Það væri t.d. hægt að auglýsa það að á sama tíma og á að taka pening úr heilbrigðiskerfinu eru borgaðar 6000 já sex þúsund miljónir á hverju ári til kirkjunnar. Það mætti einnig auglýsa það að í hverjum mánuði fá prestar landsins 144 að tölu um 87 miljónir til skiptanna sem eru laun á bilinu 550-870 þúsund á mánuði, og biskupinn með yfir miljón. Svo mætti bæta við að þeir fá síðan sér greitt fyrir allar athafnir eins og skýrn, giftingar og fermingar vegna þess að það er hægt að vera kristilegur verktaki, þannig komast prestar í enn meiri pening. Já græðgin er víða. Að hugsa sér þessir menn eru svo með þessi laun fyrir það að segja okkur hinum að það hafi verið til maður sem var eingetinn og að konan hafi verið búin til úr rifbeini. Já þörfin fyrir svona barnalegar sögur er borguð dýru verði og rétt væri að auglýsa það. Svo mætti koma ein stór auglýsing sem á stæði ,,Guð er ekki til"
Valsól (IP-tala skráð) 13.1.2009 kl. 00:24
Fræðist um hvernig þetta byrjaði hér :
http://www.guardian.co.uk/commentisfree/2008/jun/20/transport.religion
Morten Lange, 13.1.2009 kl. 13:48
Það er hart að heyra trúlausa gagnrýnda eins og hér fyrir ofan þegar þeir þurfa að horfa upp á mun harkalegri gagnrýni og ég leyfi mér að segja hótanir af höndum trúaðra. Þessi auglýsing er hugvekja og sé þetta of mikið, hvað er þá bænalestur í ríkismiðlum, kristinfræði og kirkjur?
Benjamín Plaggenborg, 13.1.2009 kl. 16:10
Mér persónulega finnst trúleysingjar vera orðnir svolítið pirrandi. Svona eins og femínistarnir hér um árið.
Nema munurinn er sá að þær voru að tala fyrir ágætu málefni, ekki að monta sig af trúarafstöðu sinni.
Hvert er annars takmarkið? Að losna við jólin, jarðarfarir og kirkjurnar í kringum landið? Neh, held að fólk geti haft sér verðugri málefni.
Bjarni Ben (IP-tala skráð) 13.1.2009 kl. 18:11
Bjarni, það er auðvitað mögulegt að þeir geri ráð fyrir því að þeir hafi rétt fyrir sér. Eins og trúaða fólkið. Að þeir megi ekki tjá sig um það (eins og trúaða fólkið má) án þess að vera kaffærðir í svona gagnrýni þykir mér að ég held meira pirrandi en þér fundust "femínistarnir hér um árið."
Benjamín Plaggenborg, 13.1.2009 kl. 18:21
Bjarni Ben, þú spyrð hvert takmarkið sé. Ég held að þröstur, LegoPanda og Bjarki hérna fyrir ofan hafa hitt naglann ágætlega á höfðið.
En þetta fór af stað þegar penni í The Guardian skrifaði um auglýsing á - einmitt strætó - sem sagði að von væri á refsingu frá Guði. Á vefsíðunni sem bent var á var þetta útlistað í lýsingum sem voru til þess fallnar að hræða fólki enn meira. Þetta hefðir þú getað lesið með því að fylgja krækjunni sem ég sendi :
http://www.guardian.co.uk/commentisfree/2008/jun/20/transport.religion
En hér er byrjunin :
Og svo í lokin :
Morten Lange, 13.1.2009 kl. 22:21
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.