Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, júní 2009

Myndræn skýring

Icesave samningur við hollendinga

Svona til glögvunar þá er ég búinn að setja þetta upp myndrænt.

Þetta er Hollenski samningurinn eins og hann leggur sig.

Orð eru því stærri sem þau koma oftar fyrir í samningnum. 

Miðað við allt það bull sem hefur verið í gangi þar sem menn tala hver á móti öðrum þá er þetta ekkert verri aðferð við að meta samninginn. 

Umhugsunarvert hvað orðið Guarantee er stórt.

 


mbl.is Skýringar við Icesave-samning birtar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lýðskrum

Er þetta fólk ekki í lagi???

Fyrst er talað um að setja á sykurskatt til að vernda heilsu fólks, allt í lagi hljómar ekkert arfavitlaust en svo er settur á skattur sem nær meðal annars til sótavatns (og sykurlausra gosdrykkja) en það er algerlega sykrulaust og skaðlaust heilsu fólks eftir því sem ég best veit og þar með hefur þetta ekki neyslustýrandi áhrif. 

En takið líka eftir því hvaða sykruðu vörur fá ekki þennan skatt, jú mikið rétt sykraðar mjólkurvörur sem oftar en ekki eru markaðasettar sérstaklega fyrir börn.

Já þegar öllu er á botninn hvoft þá var þetta tal um að setja á þennan skatt í nafni hollustu bara svona venjulegt lýðskrum eins og flest sem kemur frá þessum mönnum.

Já og ekki gleyma því að þetta hefur veruleg áhrif á vísitöluna svo lánin hækka og það líka hjá fólki sem borðar alltaf hollt og mætir þrisvar í viku í líkamsrækt. 

Vaknið! 


mbl.is Skattur á kex og gos í 24,5%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjúkrahús?

Stóð ekki alltaf til að byggja hátæknisjúkrahús fyrir Símapeningana, kanski getum við byggt heilsugæslustöð fyrir peningana sem við fáum fyrir Vodafone.

 

Hvað varð eiginlega um símapeninganna?? Voru þeir kanski geimdir í sjóð 9??


mbl.is Vodafone verður selt „eins fljótt og kostur er“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frábært

Það hlýtur að vera mikill kvattining fyrir lýfeirissjóðinna að leggjast á árar með okkur hinum og styrkja krónunna, eða er það ekki alveg örugglega? Eða gæti verið að þeir væru í sama leik og bankarnir forðum og spili gegn krónunni??

það er fyrir þessa sömu sjóði sem ekki má hreifa við verðtryggingunni.

Nei alltaf skulu hagsmunir þeirra sem fjármagni stjórna verða ofan á.

 


mbl.is Lífeyrissjóðir vaxa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Höfundur

Sigurður Ingi Kjartansson
Sigurður Ingi Kjartansson
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband