15.10.2010 | 12:46
Gefum þeim vinnufrið
Það er nauðsyn á erfiðum tímum eins og núna að passa að menn séu ekki að gagnrýna Ríkistjórnina eða aðra ráðamenn, því er fullkomlega eðlilegt að beita lögreglunni á þá sem það gera til að tryggja vinnufrið fyrir Jóhönnu og co.
Við megum ekki gleyma því að þau eru að vinna alveg gríðarlega erfitt starf og eru því yfir alla gagnrýni hafin, enn eiga þau nokkra vini sem ekki eru kominn í öruggt starf hjá ríkinu og svo þarf að passa að bankarnir tapi ekki aftur þeim peningum sem þeir hafa stolið af almenningi því þá gætu þeir þurft að rukka vini sína um þá peninga sem þeir lánuðu þeim.
Yfirheyrður vegna Facebookfærslu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Eldri færslur
- Mars 2017
- Nóvember 2014
- September 2013
- Maí 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- September 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Janúar 2010
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þessi frétt er um nákvæmlega ekkert. Þessi maður hefur náð sér í sína fimmtán mínútna frægð. Lögreglan hefur sýnt að hún vinnur faglega í öllum málum.
Sævar (IP-tala skráð) 15.10.2010 kl. 13:19
Hvaða vinnufrið á að veita þessu fólki???
2 ár er ágætis tími til að vinna að einhverju en ríkisstjórnin hefur notað tímann í hvað??? Allavega ekki til að hjálpa heimilunum í landinu...
"Björgum heimilunum" var sagði Jóhanna fyrir síðustu kosningar en meiningin hjá henni var "förgum heimilunum", allavega er svo að sjá miðað við aðgerðir eða aðgerðarleysi stjórnvalda...
Það að siga löggunni á einn mann vegna fésbókarsíðu flokkast undir paranoju á háu stigi og er bara til þess að menn geri meira grín að þessu hyski í stjórnarráðinu.
Með kveðju
Kaldi
Ólafur Björn Ólafsson, 15.10.2010 kl. 13:44
Fyrir hvern var fyrri ríkisstjórn að vinna og fyrir hverja er þessi ríkisstjórn að vinna.?
Númi (IP-tala skráð) 15.10.2010 kl. 15:49
Númi, ég er hræddur um að í hvorugu tilfellinu sé svarið "fólkið í landinu" :(
Sigurður Ingi Kjartansson, 15.10.2010 kl. 16:08
Það er nefnilega málið Sigurður Ingi,ekki fyrir fólkið í landinu.Elítan sér ætíð um sína.
Númi (IP-tala skráð) 15.10.2010 kl. 17:54
Veit ekki betur en að þau hafi haft vinnufrið í ca. 18 mánuði? Sá tími hefur farið í að hjálpa auðmönnum og fjármálastofnunum ekki bágstöddum heimilum, öryrkjum, öldruðum, einstæðum mæðrum, sjúkum og veikburða og öðrum sem þurfa á hjálp að halda.
Edda Karlsdóttir, 16.10.2010 kl. 10:11
Ef Ríkisstjórnin heldur sínu striki þá getur hún fengið allan þann vinnufrið sem hún óskar.Það verða einfaldlega engin eftir á landinu til að trufla þau
Sigurbjörn Kjartansson (IP-tala skráð) 16.10.2010 kl. 10:57
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.