Leita í fréttum mbl.is

Lýðskrum

Er þetta fólk ekki í lagi???

Fyrst er talað um að setja á sykurskatt til að vernda heilsu fólks, allt í lagi hljómar ekkert arfavitlaust en svo er settur á skattur sem nær meðal annars til sótavatns (og sykurlausra gosdrykkja) en það er algerlega sykrulaust og skaðlaust heilsu fólks eftir því sem ég best veit og þar með hefur þetta ekki neyslustýrandi áhrif. 

En takið líka eftir því hvaða sykruðu vörur fá ekki þennan skatt, jú mikið rétt sykraðar mjólkurvörur sem oftar en ekki eru markaðasettar sérstaklega fyrir börn.

Já þegar öllu er á botninn hvoft þá var þetta tal um að setja á þennan skatt í nafni hollustu bara svona venjulegt lýðskrum eins og flest sem kemur frá þessum mönnum.

Já og ekki gleyma því að þetta hefur veruleg áhrif á vísitöluna svo lánin hækka og það líka hjá fólki sem borðar alltaf hollt og mætir þrisvar í viku í líkamsrækt. 

Vaknið! 


mbl.is Skattur á kex og gos í 24,5%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Zaraþústra

Nær allar þessar sykruðu mjólkurvörur sem um ræðir eru framleiddar hérlendis (enda séð til þess með tollum og sköttum).  Það þýðir að skatturinn mun einnig hækka verð á sykruðum mjólkurvörum, þar sem sykurinn sem settur er út í hækkar í verði.

Zaraþústra, 22.6.2009 kl. 21:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sigurður Ingi Kjartansson
Sigurður Ingi Kjartansson
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband