Leita í fréttum mbl.is

Er ekki verið að grínast?

Burt séð frá þeirri augljósu vanhæfni sem sýslumaður sýnir með að vera í röngu bæjarfélagi þá verð ég að setja stórt spurningamerki við það að hægt sé að selja hús ofan af fólki vegna vangoldinna leyfisgjalda á hundi á sama tíma og ekki er hægt að ganga að eigum ýmissa yfirmanna í bankakerfinu þar sem viðkomandi eignir eru ekki sérstaklega tilgreindar sem veð fyrir þeir ofurlánum sem þeir skulda.

Er það bara vitleysa í mér eða gilda tvö lög í þessu landi?


mbl.is
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Axel Jóhann Axelsson

Hundar eru miklu skynsamari og ábyrgari en margur bankamaðurinn. 

Þess vegna eru líka gerðar kröfur um, að þeir standi í skilum með skuldir sínar.  Annar er auðvitað selt ofan af þeim, en engum lætur sér detta í hug að selja ofan af bankamönnum.

Það ætlast heldur enginn til að þeir séu ábyrgir gerða sinna í fjármálum.

Axel Jóhann Axelsson, 23.6.2010 kl. 14:11

2 Smámynd: Aðalsteinn Agnarsson

Hvar hefur þú verið Sigurður minn.

Aðalsteinn Agnarsson, 23.6.2010 kl. 14:20

3 identicon

jú það er verið að grínast  - þessi "frétt" birtist í dálki í Feyki sem heitir Dreifarinn og er uppspuni frá rótum... mogginn tekur sig bara mjög alvarlega :-)

Berglind (IP-tala skráð) 23.6.2010 kl. 14:22

4 Smámynd: Eyjólfur G Svavarsson

Gott ef þetta er grín, en þatta gæti allt eins verið alvara!!!

Eyjólfur G Svavarsson, 23.6.2010 kl. 14:33

5 identicon

Það kæmi mér lítið á óvart að svonalagað kæmi fyrir.Embættismannakerfið er yfirfullt af vanhæfu fólki og ekkert víst að það hafi of mikið fyrir því að lesa einhverja pappírsnepla

Sigurbjörn Kjartansson (IP-tala skráð) 23.6.2010 kl. 14:45

6 identicon

Þetta e

Ananas (IP-tala skráð) 23.6.2010 kl. 15:09

7 Smámynd: Sigurður Ingi Kjartansson

Sem betur fer átti þessi frétt sér engan stað í raunveruleikanum og morgunblaðið búið að fjarlægja hana :)

Sigurður Ingi Kjartansson, 23.6.2010 kl. 15:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sigurður Ingi Kjartansson
Sigurður Ingi Kjartansson
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband