Leita í fréttum mbl.is

Eru lífeyrissjóðir að brjóta lög?

Hvað semn hún segir þá er það samt staðreynd að lífeyrissjóðirnir eru á fullu í fasteignabraski enda eru þeir stærstu eigendur stóru fasteignafélagana.
Það er því líklega ekkert því til fyrirstöðu að sjóðirnir eigi og reki fasteignafélög, eða eur þeir kannski að brjóta lög nú þegar?


mbl.is Fara ekki í fasteignastarfsemi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Allir seðlarnir orðnir mynt

Nýkrónana þegar verið er að tala um nýja 500 krónu mynt er gaman að rifja upp þá peninga sem settir voru í umferð 1981, þá var hæsti seðilinn 500 krónur, því munu allir upphaflegu seðlarnir hafa færst yfir í mynt.
Já og einu myntirnar sem eftir standa frá þessum tíma eru krónan og fimmkallinn.


mbl.is 500 krónu mynt í stað seðils
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Milla á mann!

Ef mér reiknast rétt til þá er þetta rétt tæp milljón á hvert mannsbarn í landinu, það er hellings gjaldeyrir, ekki bara fyrir bankann heldur fyrir landið.
mbl.is Þolir ekki stífar endurgreiðslur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Auðveld lausn.

Þetta má á auðveldan hátt leysa með því að nota táknmyndir í stað orða, 
Þá skilja það  allir án tillits til tungumáls eða lestrarkunnáttu.
Það má nefnilega ekki gleyma því að það eru ekki allir ferðamenn á íslandi enskumælandi.

mbl.is Bannað að birta „CLOSED“ á ljósaskilti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jú, víst.

leifsstodAf einhverjum ástæðum er þeim hjá ISAVIA mjög umhugað um að allir haldi að þeir hafi ekkert með lénið eða nafnið Leifsstöð að gera.

Samt er það nú svo að ef skoðuð  er skráning lénsins hjá ISNIC þá er augljóst að það er í eigu ISAVIA.

Ef Leifsstöð er slegið upp í símaskrá þá kemur upp keflavíkurflugvöllur ásamt fjölda rekstraraðili á flugvellinum. 


Maður fær einhvernvegin skrítna tilfinningu þegar maður veit að það er verið að ljúga að manni en maður veit ekki af hverju.


mbl.is Lénið ekki tengt flugvellinum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gengisfelling

Líklega er þetta einhverskonar örþrifaráð sem menn grípa til þegar þeir hafa ekki lengur eigin gjaldmiðil og geta ekki framkvæmt gengisfellingu.

 

Mörgum á Kýpur þykir sárast að þessi  skattur er lagður á allar innistæður hversu litlar sem þær eru og þarna hjálpar hin margfræga innistæðutrygging ekki  neitt. 


Þetta sama hefur verið að gerast hér heima bara rólega og í formi fallandi gengis, innistæður hafa tapað verðmæti sínu.


mbl.is Umdeild skattlagning á sparnað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Einföld lausn

Það er víst frekar einfalt að leysa þetta mál með því að byggja nokkur þúsund fermetra af húsnæði sem við höfum ekki efni á að reka.
mbl.is Vísa verður bráðveiku fólki burt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Breyttir tímar

Í dag kvarta menn yfir því að forsetinn sé að skipta sér af málum, áður fögnuð þeir frumkvæði hans.

Hér er lítið brot úr forystugrein Alþýðublaðsins 13. Febrúar 1997 (ritstjóri enginn annar en Össur Skarphéðinsson) Hér er verið að tala um það þegar hann hvatti Norðmenn og Íslendinga til að semja í smugudeilunni. 

 

"Herra Ólafur Ragnar á hrós skilið fyrir það frumkvæði sem hann hefur nú tekið. Það kemur hinsvegar engum á óvart sem þekkir til glöggskyggni og reynslu forsetans þegar alþjóðamál eru annars vegar. Frumkvæði hans hefur leitt til opnunar, sem bæði Norðmenn og ͍slendingar eiga að nýta sér til að ljúka deilunum með hætti, sem báðum þjóðum er til sóma. Vinaþjóðir, sem urðu til á svipuðum tíma, sem kalla til ríkrar frændsemi hvor við aðra, sem fylgja hvor annarri að málum í flestum málum á erlendum vettvangi, eiga nú að slíðra sverðin."

 

 Hægt er að skoð þessa forystugrein í heild hér 

http://timarit.is/view_page_init.jsp?issId=246832&pageId=3348794&lang=is


mbl.is Stórskotaliðsárásir forseta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rangur póll í hæðina

Þarna er verið að leysa vitlaust vandamá, það er nefnilega þannig að fólk hendir alls ekki miklu af plastpokum heldur notar fólk þá undir rusl sem það hendir frá heimilinu, ég hef reyndar oft furðað mig á því hvernig standi á því að ég hendi nær jafn miklu og ég kaupi inn, ég hef meiri að segja lent í því að þurfa að kaupa auka poka til að nota undir allt ruslið á heimilinu.

Semsagt  ef mér verður bannað að bera vörurnar heim úr búðinni í burðartpokum þá verð ég að kaupa næstum sama magn af pokum undir allt ruslið sem safnast fyrir á heimilinu.

Væri ekki nær að reyna fyrst að takmarka þær umbuðir sem notaðar eru undir matvæli áður en ráðist er á burðarpokana?

Nei annars það er of flókið, bönnum heldur burðarpokanna svo það líti út fyrir að við séum að gera eithvað.


mbl.is ESB íhugar plastpokabann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spyr sá sem ekki veit.

Ég hef verið að velta fyrir mér hvernig er kvótamálum eð fiskveiðistjórn háttað í Þýskalandi?
Er óveiddur fiskur þar í einkaeigu?
Svona þar sem Samherja hefur gengið ágætlega að reka útgerð þar væri þá möguleiki að hafa svipað kerfi hér?

Spyr sá sem ekki veit.


mbl.is ESB-þorski landað hér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Höfundur

Sigurður Ingi Kjartansson
Sigurður Ingi Kjartansson
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband